Út með það gamla og inn með það nýja!
Fargi fargað, öllu aflétt Öllu fórnað á leiðinni Er þessi leið, dimm og blaut, rétt? Er þetta henni að kenna? reiðinni? Þetta hefur verið viðburðaríkur dagur. Lífið snérist eiginlega bara við og henti mér í hina áttina en í leiðinni fann ég fyrir að áhyggjum var lyft af mér. Vildi þó að það hafi verið á einhvern annann hátt en já, lífið er ekki alltaf sanngjarnt. Og stundum eru allir vegir erfiðir, Málið er bara að velja veginn með rétta leiðarendann. Ég er að pæla í að fara í sturtu, þvo af mér áhyggjurnar, þvo af mér óhreynindinn, og þvo af mér gamla drauma, svo ég hafi pláss fyrir þá nýju. Verst að þeir nýju eru uppteknir... í bili...


0 Skoðanir:
Sendu inn athugasemd
<< Heim